Fór fram á Hótel Örk í Hveragerði laugardaginn 30. apríl. Þingið átti að fara fram vorið 2021 en eins og svo margt annað þá var því frestað vegna Covid, fyrst til haustsins 2021 en síðan til vors 2022. Þá var jafnframt ákveðið að Ísland myndi halda áfram formennsku í stjórn og tækninefnd NPSA fram að þingi 2022. Næsta tímabil yrði því aðeins eitt ár. Til þingsins mættu fulltrúar frá öllum aðildarlöndum NPSA, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð auk okkar. Rétt til þingsetu hafa 3 fulltrúar frá hverri þjóð. Ísland, Danmörk, Eistland og Noregur voru með fullmannað lið en Svíar voru með tvo fulltrúa og Finnar einn. Margir komu með maka sína með og jafnvel börn og voru erlendir gestir okkar því samtals 25.
Daginn áður fór fram fundur tækninefndar NPSA til undirbúnings fyrir þingið. Í venjulegu árferði væri slíkur fundur haldinn um 4 vikum fyrir þing en þess var ekki kostur að þessu sinni.
Ísland lagði fram tillögu um að keppt yrði kynjalaust í skotfimi eða Unisex eins og við höfum okkar landsmót. Þessi tillaga hlaut ekki mikinn hljómgrunn, talið að þetta myndi letja konur til þátttöku og var tillagan dregin til baka að loknum tækninefndarfundi. Svíar lögðu fram tillögu um að keppt yrði í „Lögguhreysti“ Functional Fitness sem er eitt afbrigði af Crossfit/CF Throwdown. Var samþykkt að hafa eitt mót til reynslu og mun það fara fram í Svíþjóð 2023. Óskar kynnti niðurstöðu í þeirri vinnu sem hann er búinn að með á sinni könnu en það er að ná fram styrk frá Nordisk Kriminal Krönika sem eyramerktur verður NPC í knattspyrnu. Niðurstaðn er sú að NPSA fær 200.000 evrur fyrir næsta mót sem fram á að fara í Svíþjóð 2024. Svíar tóku síðan við fomennsku af okkur Í NPSA. Michael Fetz var kosinn formaður og Mikaela Kellner formaður tækninefndar. Óskar Bjartmarz verður áfram í stjórn og Jóhann Karl Þórisson í tækninefnd sambandsins. Mótaskrá var uppfærð og samkvæmt henni er næsta mót sem Ísland á að sjá um handbolti árið 2030.
Að loknu þingi var farið með gesti okkar í ferð að Gullfossi og Geysi með viðkomu í Friðheimum hvar snædd var tómatsúpa með öllu tilheyrandi. Var þetta allt mikil upplifun fyrir þá og fóru þeir heim alsælir með Íslands ferðina. Næsta þing NPSA sem Ísland á verður ekki fyrr en árið 2033.
Óskar Bjartmarz
formaður ÍSL