Þá er komið að síðasta leiknum, Ísland – Noregur. Byrjunarliðið, Andri Fannar í markinu og aðrir leikmenn Jóhannes Gauti, Kristján Hagalín, Christopher, Gunnar Þór, Róbert, Arnar Már, Hinrik, Jóhann Guðbr., Óttar og Konráð. Ólafur Jóns er óleikfær eftir samstuð við Jónatan í leiknum í gær, hann er með sokkið auga og stokkbólginn, Arnar Geir og Magnús eru einnig ekki í standi til að spila. Jón Gunnar kemur inn hópinn í staðinn fyrir Magnús sem ekkert hefur komið við sögu í mótinu.