7. og 8 nóvember
Aðeins þeir sem hafa lokið grunnþjálfun í meðferð skotvopna á vegum LSR er heimuluð þátttaka í glock.
Föstudag 7. nóvember kl. 16:00 Loftskammbyssa Borgarnesi
Laugardag 8. nóvember kl 10:00 Opinn flokkur ( sportbyssa ) Borgarnesi
Laugardag 8. nóvember kl 13:00 Glock. Borgarnesi
Loftskammbyssa: 10 m. færi skv. alþjóðareglum
Karlar 60 skot. – 15 mín upphitun,- 15 mín æfingaskot – 1 klst. og 15 mín. keppni
Konur 40 skot – . 15 mín upphitun, – 15 mín æfingaskot – 1 klst. keppni
Opinn flokkur: 25 m. færi ( allar skammbyssur leyfðar )
60 skot
6 x 5 skot á 6 mín. hver 5 skota hrina
6 x 5 skot Duell, eitt skot í einu á 3 sek., mark frá 7 sek.
Glock byssa: 10, 15, 20, og 25 m. færi skv. reglum ÍSL
$11.Færi 10 m. hraðaskot 2 x 5 skot á 15 sek.
$12.Færi 25 m. 5 skot liggjandi / 5 skot sitjandi
$13.Færi 20 m. skot úr skjóli 5 skot hægra megin og 5 skot vinstra megin
$14.Færi 15 m. 5 skot hnéstaða / 5 skot standandi
$15.færi 10 m. 5 skot standandi tvíhendis og 5 skot einhendis
ATH: Keppendur þurfa að koma með byssur og skot sjálfir í öllum greinum,
Keppt er í karla og kvennaflokki.
Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist eigi síðar en sunnud. 2. nóv með tölvupósti á jon.s.ola@logreglan.iseða kom@logreglan.is
Ekki verður unnt að bæta við skráningum eftir þessa dagsetningu. Þá er áréttað að skráning í sveitir þarf að koma fram í þáttökutilkynningu. 3 menn í sveit og eftir atvikum varamaður/menn færast inn í sveitina við gild forföll.
Verðlaunafhending fer fram á lokahófi á laugardagskvöldinu. Boðið verður upp á gistingu á hóflegu verði en þetta tvennt verður kynnt betur síðar
Að gefnu tilefni eru þeir sem skrá sig til keppni beðnir um að láta vita ef forföll verða.
Þátttökugjald er kr. 2000.- , eitt gjald fyrir mótið og eru keppendur beðnir um að ganga frá greiðslu með reiðufé við upphaf keppni.
Skotnefnd ÍSL