| Lögguhreysti 2015 fór fram laugardaginn 03. október s.l. í og við Lögregluskólann. Aðalsteinn Bernharðsson hafði veg og vanda að |
| undirbúningi og framkvæmd mótsins. Honum til aðstoðar voru nemendur skólans og Guðmundur Ásgeirsson sem var yfirtímavörður. |
| Til leiks mættu 6 lið og tvö sem komu frá Sauðárkróki og kepptu sem einstaklingar. |
| Sigurliðið var samsett lið Suðurnesja og RLS. Einn sérsveitarmaður brást við kallinu og mætti í mótið. Það er vonandi vísbending um |
| að sérsveitin mæti með lið á næsta ári. |
| Úrslit: |
| 1. Suðurnes/RLS með tímann 39,41 mín. |
| 2. Lögregluskólinn, kvennalið, með tímann 41,08 mín. |
| 3. LRH/kjúklingar með tímann 41,14 mín. |
| 4. Lögregluskólinn með tímann 43,31 mín. |
| 5. Suðurnes með tímann 45,27 mín. |
| 6. Suðurnes/kvennalið með tímann 48,35 mín. |
| Verðlaunaafhending fór fram í beinu framhaldi í Lögregluskólanum. Sigurliðið fékk farandbikar til varðveislu í eitt ár og eignabikar |
| Suðurnesjamenn og RLS verða að koma sér saman um varðveislu gripanna. Þrjú efstu liðin fengu verðlaunapeninga. |
| Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir besta brautartímann í aldursflokkum og úrslit urðu eftirfarandi. |
| 20 -30 ára karlar: Samúel A. W. Ólafsson Suðurnesjum tíminn 8,51 mín. |
| 20 – 30 ára: konur Katrín Ýr Árnadóttir LSR tíminn 9,34 mín. |
| 31 – 40 ára karlar: Friðrik Hreinn Hreinsson Sauðárkróki tíminn 10,21 mín. |
| 31 – 40 ára konur: Guðrún Helga Tryggvadóttir Sauðárkróki tíminn 10,30 mín. |
| 41 – 50 ára karlar: Ívar Ísak Guðjónsson RLS tíminn 11,12 |
| Þess má geta að elsti keppandinn var Kristján Freyr Geirsson Suðurnesjum sem fór brautina á 11,17 mín. |
| Það er ljóst að þessi keppni á framtíðina fyrir sér og komin til að vera. |