| Nordic Police CF Throwdown, NPCT. |
| Er Crossfit mót sem haldið er af Íþróttafélagi lögreglunnar á mið og |
| vestur Sjálandi sem staðsett er í Köge. |
| NPCT er haldið í Malmö þar sem mótshaldarar fá alla aðstöðu án |
| endurgjald. Danska lögregluíþróttasambandið hvatti önnur norræn |
| lögregluíþróttasambönd til að senda keppendur á þetta mót. |
| Ástæðan fyrir þessari hvatningu er sú að innan Norræna lögreglu- |
| íþróttasambandsins, NPIF, hefur komið upp sú hugmynd að taka Crossfit |
| upp sem íþróttagrein. Af þessari ástæðu ákvað stjórn Íþróttasambands |
| lögreglumanna, ÍSL, að senda keppendur á mótið. Fyrst og fremst |
| til að kynnast slíku mótshaldi með það í huga að það komi til þess að |
| haldin verði norðurlandamót í Crossfit. |
| Stjórnin ákvað að bjóða þeim fjórum sem voru í sigurliði í Lögguhreysti |
| síðast liðið haust að fara á mótið á vegum ÍSL. Strax kom í ljós að einn |
| þessara aðila er hættur í lögreglunni. Þá var ákveðið að bjóða þeirri |
| konu sem stóð sig best á áðurnefndu móti að fara á NPCT mótið og |
| vera þá með blandað lið (kv/kk). Allir þessir fjórir aðilar voru tilbúnir að |
| fara á þetta mót og undirbúa sig fyrir það. |
| Ákvörðun stjórnarinnar hefur valdið umræðu og jafnvel úlfúð meðal |
| lögreglumanna. Því er nauðsynlegt hér í framhaldinu að fara aðeins |
| yfir málið og skýra þá tvo þætti sem mest hefur verið rætt um. |
| Ákvörðun stjórnarinnar um um að bjóða þessum aðilum að fara |
| á mótið var fyrst og fremst miðuð við það að senda lögreglumenn |
| í þessa tilraunaferð með stuttum fyrirvara, sem hafa sýnt íþrótta- |
| starfsemi ÍSL áhuga með þátttöku í mótum á vegum ÍSL. Stjórn ÍSL er |
| fullkunnugt um það að talsverður munur á Crossfit og Lögguhreysti. |
| Í grunninn reynir þó á svipaða þætti í þjálfun. |
| Hitt atriði sem hefur verið rætt um er það að senda keppendur á mótið |
| sem hvorki er norðurlanda- eða evrópumót. Þessi athugasemd á |
| sennilega rætur sínar að rekja til þess að á undanförnum árum hafa |
| stjórnir ÍSL ekki styrkt keppendur á Heimsleika lögreglu- og slökkviliðs- |
| manna og gefið þær skýringar að ÍSL einbeiti sér að norðurlanda- |
| og evrópumótum lögreglumanna sem NPCT mótið er ekki. Því atriði |
| hefur verið svarað hér að framan með því að sú hugmynd að taka upp |
| Crossfit sem íþróttagrein innan NPIF hefur komið fram og þátttaka okkar |
| er liður í því að gera þá hugmynd að veruleika. |
| Það er mjög mikilvægt að fyrstu skrefin í því að koma, hugsanlega, á fót |
| norðurlandamótum lögreglumanna í Crossfit leiði ekki af sér leiðindi innan |
| okkar raða. Því hefur það komið til tals innan stjórnar að bæta við einu |
| liði (2) sem keppti á NPCT á vegum ÍSL. Það mál verður skoðað næstu daga. |