Holukeppni ÍSL 2024

Undanúrslit og úrslit fóru fram 16. september á Urriðavelli í Heiðmörk. Veður ágætt þegar leikur hófst þurrt og tiltölulega lítll vindur en veðurspá var ekki góð. Um kl. 14.00 fór vindur að aukast og í lokin var farið líka farið að rigna.

Það voru 26 sem tilkynntu þátttöku í mótinu og er það sennilega það fjölmennasta fram að þessu. Það þurfti. 10 leiki í undankeppni áður en kom aö 16 manna úrslitum. Að lokum voru það þau Birgir Már Vigfússon, Hekla Daðadóttir, Páll Theodórsson og Róbert Sigurðarsson sem stóðu eftir þegar að undanúrslitum kom. Róbert var því miður veikur þegar kom að leikdegi og Sigurbjörn Þorgeirsson sem hafði tapað fyrir Róberti í 8 manna úrslitum átti ekki heimangengt. Það voru því þrjú sem mættu til leiks.

Dregið var um röðun og kom það í hlut Birgis og Heklu að leika undanúrslitaleikinn og að Páll sat yfir og kominn í úrslitaleikinn.

Í undanúrslitum eins og undanfarin ár voru leiknar 9 holur.

Leikur Birgis og Heklu var jafn og Birgir hafði ekki sigur fyrr en á síðustu holu og úrslit því 1/0 fyrir Birgi.

Hér er Birgir í vandræðum inni í trjálundi

Í pásunni á milli leikja var snæddur hádegisverður í boði ÍSL.

Í úrslitaleiknum voru leiknar 18 holur.

Eftir 15 holur átti Páll tvær holur á Birgi. Birgir sigraði 16. og 17. holu þannig að þegar komið var á 18 holu var staðan orðin jöfn. Birgir sigraði 18. Holuna og lokastaðan því 1/0 og var þar með orðinn Holumeistari ÍSL 2024.

Birgir sigraði einnig á landsmóti ÍSL á Suðurnesjum í sumar og því tvöfaldur meistari hjá ÍSL þetta árið.

  1. Birgir Már Vigfússon
  2. Páll Theodórsson
  3. Hekla Daðadóttir

Að loknum úrslitaleiknum fór fram verðlaunaafhending.

Jóhann Karl Þórisson varaformaður ÍSL sá um mótið eins og áður en hann og undirritaður sáu um undanúrslitin og úrslitin.

Óskar Bjartmarz
formaður ÍSL

Scroll to Top