Evrópumót lögreglukvenna í körfuknattleik 2024

Dagana 18 – 25. maí 2024 fór fram evrópumót lögreglukvenna í körfuknattleik í borginni Heraklion á Krít í Grikklandi.

Þetta var fjórða evrópumót lögreglukvenna í körfuknattleik en þetta í fyrsta skipti sem Íþróttasamband lögreglumanna, ÍSL, sendir lið í þessa keppni.

Síðasta mót fór fram fyrir 9 árum og þá urðu Frakkar evrópumeistarar en mótið árið 2020 féll niður vegna Covid.

Eftirtaldar skipuðu lið ÍSL á mótinu. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir LRH, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir LNV, Anna Soffía Lárusdóttir LVL, Perla Jóhannsdóttir LRH, Birta J. Jónasdóttir LVL, Dagrún Inga Jónsdóttir LRH, Erna Rut Kristjánsdóttir LNV, Sara Lind Reynisdóttir LSS, Sara Lind Kristinsdóttir LSL, Þórgunnur Þórðardóttir LRH, Þórhildur Vala Kjartansdóttir LRH, Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir LSL, þjálfari var Magni Hafsteinsson RLS og aðst. þjálfari var Ólafur Örvar Ólafsson LSS. Liðsstjórar voru Jóhann Karl Þórisson LRH og Kristína Sigurðardóttir LRH. Fararstjóri var Óskar Bjartmarz.

Æfingar fóru fram í íþróttahúsi KR og var æft einu sinni í viku til að byrja með en síðan var æft tvisvar í viku. Leiknir voru nokkrir æfingaleikir á undirbúningstímanum.

Ísland var í riðli með Frakklandi, Bretlandi og Belgíu. Í hinum riðlinum voru Grikkland, Slóvakía og Ungverjaland. Írland hafði tilkynnt þátttöku en hættu við hana.

Fyrst leikur okkar var gegn ríkjandi meisturum Frakklandi. Byrjunarliðið, Sigrún Sjöfn, Guðrún Gróa, Anna Soffía, Perla og Birta. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 20 – 17 fyrir okkur. Staðan í háflleik var 25 – 30 og Frakkar yfir. Heldur dró saman í þriðja leikhluta en að honum loknum var staðan 44 – 45. Lið Íslands náði hins vegar yfirhöndinni í fjórða og síðasta leikhluta og sigraði 61 – 56. Hreint ótrúleg og algjörlega óvænt úrslit. Dagrún, Erna Rut, Þórgunnur og Þórhildur komu inná í leiknum. Stigaskorun Sigrún Sjöfn 16 stig, Anna Soffía 16 stig, Dagrún 9 stig, Guðrún Gróa 8 stig, Birta 7 stig og Perla 5 stig. Guðrún Gróa átti stórleik tók ógrynni sóknar- og varnar frákasta.

Næsti leikur okkar var við lið Breta sem var greinilega með sísta liðið í riðlinum. Byrjunarliðið Sigrún Sjöfn, Anna Soffía, Dagrún, Perla og Birta. Lokastaða 70 – 35 en staðan eftir fyrsta leikhluta var 19 – 2 fyrir okkur. Staðan í hálfleik var 41 – 18. Allir leikmenn komu við sögu í leiknum. Stigaskorun, Anna Soffía 15 stig, Guðrún Gróa 12 stig, Perla 12 stig, Sigrún 9 stig, Þórgunnur 6 stig, Jóhanna 4 stig, Þórhildur 4 stig, Erna Rut 2 stig, Sara Lind Kr. 2 stig, Birta 2 stig, Sara Lind R. 2 stig.

Því miður unnu Frakkar síðan lið Belgíu og þar með ljóst að við yrðum að vinna lið Belgíu til að vera með tryggt sæti í undanúrslitum. Þegar leikurinn hófst var ljóst að við máttum tapa leiknum en með litlum mun til að komast í undanúrslit.

Byrjunarliðið gegn Belgum var eftirfarandi Sigrún Sjöfn, Anna Soffía, Guðrún Gróa og Dagrún. Leikurinn varð fljótlega erfiður. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 14 – 18, staðan í hálfleik orðin 22 – 42 og eftir þriðja leikhlutan var staðan 35 – 55. Besti leikmaður okkar liðs Sigrún Sjöfn meiðist síðan í fjórða leikhluta þegar 5 og hálf mínúta er eftir, féll í gólfið eftir samstuð við belgískan leikmann og við það að lenda á gólfinu fer Sigrún úr axlalið. Við þetta varð heillöng töf á leiknum þar sem lítið var um bjargir í íþróttahúsinu þó þar ætti að vera læknir, sjúkrabifreið kom ekki fyrr en seint og um síðir en talað var um að það væri í gangi verkfall hjá sjúkraflutningafólki í borginni. Við þetta allt saman og brottför okkar besta leikmanns var sem allur vindur væru úr okkar konum og lokatölur urðu 48 – 76. Aðeins einni af þeim sem ekki voru í byrjunarliðinu var  skipt inná en það var Birta. Stigaskorun Sigrún 19 stig, Guðrún Gróa 17 stig, Perla 6 stig og Anna Soffía 6 stig.

Þar með ljóst að við myndum leika um 5ta sætið við lið Ungverja.

Byrjunarliðið Guðrún Gróa, Anna Soffía, Perla, Dagrún og Birta. Leikurinn við var í járnum í byrjun og staðan eftir fyrsta leikhluta var 15 – 15 en í hálfleik var staðan orðin 32 – 25 fyrir okkur. Í þriðja leikhluta má segja að okkar konur hafi gert út um leikinn en staðan að honum loknum var 51 – 34. Lokatölur 62 – 48. Í þessum leik var öllum skipt inná og áttu Ungverjar ekki roð í okkar lið. Stigaskorun Anna Soffía 29 stig, Guðrún Gróa 10 stig, Perla 9 stig, Dagrún 6 stig, Þórgunnur 2 stig, Birta 2 stig, Jóhanna 2 stig, Erna Rut 2 stig.

Gríska lið varð síðan sigurvegari á mótinu með því að sigra Frakka naumlega í úrslitaleiknum 49 – 48.

Óskar Bjartmarz                                                                                                                                                                        formaður ÍSL

Scroll to Top