Landsmót lögreglumanna 2025 í Pílukasti – 501 fór fram laugardaginn 8. mars s.l. á Bullseye við Snorrabraut.
Keppendur voru 26 frá 5 embættum en það voru 5 aðilar sem höfðu bókað sig í viðbót en urðu að afboða sig. Á síðasta ári tóku tóku 24 þátt í mótinu. Meistarinn frá því síðasta ári, Trausti Fr. Jónsson, var fjarri góðu gamni og gat ekki verið með til að verja titilinn.

Mótið hófst með riðlakeppni, 8 riðlar þar sem voru 4 í tveimur riðlum og 3 í hinum 5. Tveir efstu fóru síðan í 16 manna úrslit, þar sem leikin var útsláttarkeppni þar til tveir stóðu eftir sem léku um meistaratitilinn. Þeir sem eftir sátu fóru í B keppni þar sem einnig var sama fyrirkomulag. Þar hins vegar voru bara tveir leikir í fyrstu umferð en hinir 6 sátu hjá til að dæmið gengi upp.
B keppnina sigraði Jón Þór Eyþórsson, RLS en hann sigraði Vigni Inga Eggertsson, LRH, 2 – 1. Í þriðja sæti varð Finni Aðalheiðarson, Vesturlandi en Bjarki Lilliendahl, LRH gaf leikinn um 3ja sætið.

Til úrslita á mótinu léku þeir Egill Egilsson, RLS og Karl Ingi Vilbergsson, Héraðssaksóknara sem sigraði B keppnina á síðasta ári. Egill sigraði Karl 4 – 1. Í þriðja sæti varð Guðjón Rúnar Sveinsson, LRH. Magnús Óliver Axelsson Suðurlandi gaf leikinn um 3ja sætið.


Sveitakeppnina sigraði síðan sveit RLS1 með 65 stig, en hana skipuðu þeir Egill Egilsson, Jón Þór Eyþórsson og Magnús Vignir Guðmundsson, Í öðru sæti varð sameiginleg sveit Héraðssaksóknara og Suðurlands, með 53 stig, en hana skipuðu þeir Karl Ingi Vilbergsson og Magnús Óliver Axelsson og Þröstur Ægir Þorsteinsson frá Suðurlandi. Í þriðja sæti varð sveit LRH3 með 37 stig, en hana skipuðu þeir Guðjón Rúnar Sveinsson, Aron Sveinn Elínarson og Sveinbjörn Jun Iura.

Dómari og umsjónaraðli mótsins var Arna Rut Gunnlaugsdóttir og kann ÍSL henni miklar þakkir fyrir aðstoðina og utanumhaldið.
Núna er komin talsverð reynsla á þetta mótshald og ljóst að fækka þarf leggjum í hverjum leik. Reglan hefur verið best 3 af 5 leggjum í leik í riðlunum og fram að 4 manna úrslitum. Það er ljóst vegna þess hve mikinn tíma slíkt mótshald tekur að fækka í best 2 af 3 leggjum.
Vonandi heldur þetta mót áfram að vaxa.
Óskar Bjartmarz
formaður ÍSL