| | Afreksmerki Íþróttasambands Lögreglumanna |
| | |
| 1. | Markmið |
| | Lögreglumannsstarfið er á margan hátt krefjandi. Ekki síst líkamlega. |
| | Til þess að geta sinnt starfi sínu sem skyldi þurfa lögreglumenn að |
| | vera vel á sig komnir, geta varið sig og bjargað öðrum. |
| | ÍSL veitir afreksmerki í þeim tilgangi að stuðla að góðu líkamlegu |
| | ástandi allra lögreglumanna. |
| | Merkin eru þrjú, gull, silfur og brons og veitt eftir því hversu oft |
| | lögreglumenn klára þrautirnar. |
| | |
| 2. | Þrautir |
| | 1. 200 m. sund |
| | 2. 3000 m. hlaup (víðavangshlaup eða á hlaupabraut) |
| | eða |
| | 20 km. hjólreiðar |
| | eða |
| | 7 km. stafaganga |
| | 3. 100 m. sund í fötum – engin tímamörk* |
| | *Fatnaður á að vera ökklasíðar buxur eða jakki með ermum í fullri lengd. |
| | Jakkinn hnepptur/renndur upp í háls. Samfestingar ekki leyfðir og ekki |
| | leyft að bretta upp ermar eða skálmar. Þá er einnig bannað að þrengja |
| | fatnaðinn t.d. með teygjum eða belti. |
| | 4. Langstökk með atrennu eða án atrennu eða hástökk. |
| | 5. Skotfimi með lögreglubyssu.* |
| | *Fjórar 5 skota hrinur á standard skífu. 25 m. færi og 30 sek. pr. hrinu. |
| | Einhendis eða tvíhendis, keppnisbyssur eða keppnisskefti bönnuð. |
| | Byssa hlaðin og spennt þegar tímataka hefst. |
| | Standard skotskífa er 25. m. skammbyssuskotskífa. |
| | Lágmarksárangur 110 stig. |
| 3. | Framkvæmd |
| | Sá sem hyggst þreyta próf til að ávinna sér afreksmerkið velur sér þrjár greinar af þeim 5 |
| | sem taldar eru upp hér að framan. Aðeins má velja eina undir hverjum tölulið. Allar þrjár |
| | þrautirnar þarf að klára á sama almanaksári en ekki þarf að þreyta þær allar í einu. Ekki er |
| | hægt að þreyta prófið oftar en einu sinni á hverju ári. Lágmarksárangur má sjá í meðfylgjandi |
| | töflu. Árangur er skráður í sérstaka bók sem hver þátttakandi fær hjá ÍSL. Annar lögreglumaður |
| | þarf svo að staðfesta árangurinn með undirritun í bókina. |
| | |
| 4. | Aldurshópar |
| | 29 ára og yngri |
| | 30 ára og eldri |
| | 40 ára og eldri |
| | 45 ára og eldri |
| | 50 ára og eldri |
| | 55 ára og eldri |
| | 60 ára og eldri |
| | |
| 5. | Afreksmerkið |
| | Lögreglumenn sem klára þrautina í fyrsta skipti öðlast rétt til að bera bronsmerki. Eftir að hafa |
| | klárað þrautina 5 sinnum silfurmerki og 10 sinnum gullmerki. Ekki er um frekari viðurkenningar |
| | að ræða eftir 10. skipti en árangur eigi að síður skráður. ÍSL afhendir svo afreksmerkið viðkomandi |
| | lögreglumanni eftir að staðfesting hefur borist t.d. með ljósriti eða skannað úr bókinni. |