Norðurlandamót lögreglumanna- og kvenna í knattspyrnu 2024

Fór fram í Stokkhólmi 1 – 7 júní s.l.

Í annað skipti var Íþróttasamband lögreglumanna, ÍSL, með lið í bæði karla- og kvennaflokki.

Undirbúningur hófst í byrjun mars og voru þeir Pétur Guðmundsson hjá RLS og Björn Bjartmarz hjá Héraðssaksóknara fengnir til að sjá um þjálfun beggja liðanna. Pétur sem þjálfari og Björn honum til aðstoðar.

Æfingar liðanna fóru fram á Víkingsvellinum í Safamýri og æfðu bæði liðin saman. Æft var einu sinni í viku til að byrja með en síðan voru æfingar tvisvar í viku. Mætingar á æfingar voru mjög góðar og stundum voru yfir 30 manns á æfingu. Teknir voru nokkrir æfingaleikir við lið í neðri deildum eða B lið s.s. Víkings í kvennaflokki.

Hóparnir voru skipaðir eftirtöldum:
Kvennaliðið: Berglind Frost Magnúsdóttir LAL, Elva Rún Óskarsdóttir LSL, Hrafnhildur Hjaltalín LSL, Katrín Sveinbjörnsdóttir LSL, Laufey Lára Höskuldsdóttir LSS, Margrét Mirra Dan Þórhallsdóttir LSL, Þórey Sif Hrafnsdóttir, LRH, Ýr Steinþórsdóttir LRH, Þórgunnur Þórðardóttir LRH, Stefanía Pálsdóttir LRH, Soffía Ummarin Kristinsdóttir LRH sem var fyrirliði, Sandra Hrönn Arnardóttir LRH, Sóley Haraldsdóttir LRH, Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir LRH, Helga Siemsen Guðmundsdóttir LRH, Berglind Birta Jónsdóttir LRH, Helga Rún Einarsdóttir LSL og Harpa Lind Guðmundsdóttir LVL sem bættis við eftir að liðið var komið út, vegna forfalla á síðustu stundu. Hún missti því af fyrsta leiknum.

Karlaliðið:
Halldór Páll Geirsson LVE, Andri Þór Sólbergsson LSS, Sigurjón Ari Guðmundsson LVL, Davíð Fannar Ragnarsson LRH, Páll Fannar Helgason HERSAK, Bjarki Lilliendahl LRH, Gunnar Þór Þorsteinsson LVL, Hlöðver Jóhannsson LSL, Indriði Hrannar Blöndal LRH, Benedikt Bjarni Níelsson RLS, Júlí Karlsson LRH, Þorbergur Ingvi Sævarsson LRH sem var fyrirliði, Andri Snær Kristinsson LRH, Anton Gunnlaugur Óskarsson LSL, Fannar Örn Kolbeinsson LRH, Christopher Þ. Anderiman LRH, Sigmundur Freyr Hafþórsson LRH, og Daníel Freyr Ólafsson LSS.

Þjálfarar eins og áður sagði Pétur Guðmundsson og Björn Bjartmarz. Liðsstjórar Hafdís Björk Albertsdóttir LRH hjá kvennaliðinu og Katrín Ýr Árnadóttir Héraðssaksóknara hjá karlaliðinu. Kristján Fr. Geirsson LSS var nuddari og reddari. Óskar Bjartmarz var fararstjóri.

Kvennaliðið fór utan þann 01. júní þar sem liðið átti leik strax á formlegum komudegi, sem var daginn eftir. Helgast það af því að í kvennaflokki voru 5 lið og áttu allir að keppa við alla. Í karlaflokki voru sex lið og þar var skipt í tvo riðla. Við vorum í riðli með heimamönnum Svíum og Finnum. Þetta fyrirkomulag þegar 5 lið taka þátt, að allir keppa við alla er ekki hægt að bjóða upp á í nútímaknattspyrnu. Tvö lið lenda í því að leika fjóra leiki á fjórum dögum en hin 3 liðin fá einn frídag einu sinni á milli tveggja leikja. Þessu þarf að breyta og verður vonandi gert fyrir næsta mót.

Karlaliðið fór út 2. júní en þeir áttu ekki leik fyrr en 3. júní.

Mótið fór fram í Bosön á eyjunni Lindingö sem er á Stokkhólmsvæðinu. Þarna er Íþróttalýðskóli á vegum sænska íþróttasambandsins, með heimavist, íþróttahallir fyrir allar greinar s.s. knattspyrnu, aðrar boltagreinar, frjálsar íþróttir, sundlaug, þá eru utandyra gervigrasvellir og strandblakvellir. Á staðnum er einnig góð aðstaða fyrir þjálfun og endurhæfingu íþróttamanna. Þarna starfa 12 sjúkraþjálfarar sem við þurftum að fá aðgang að meðan á mótinu stóð.

Fyrsti  leikur okkar í kvennaflokki var gegn Eistlandi og fór leikurinn fram á gervigrasvelli utandyra. Byrjunarliðið Berglind Frost í markinu, Elva Rún, Hrafnhildur, Katrín, Laufey, Margrét Mirra, Þórey Sif, Ýr, Þórgunnur, Stefanía og Soffía Ummarin, fyrirliði. Í fyrri hálfleik varð að framkvæma tvær skiptingar vegna meiðsla. Á 20 mín. tognar Stefanía aftan í læri og varð óleikfær, Berglind skipti inná fyrir hana. Á 35 mínútu meiðist Þórey og kom Helga Siemsen inná fyrir hana. Staðan í hálfleik var 1 – 0 fyrir okkur en það var Berglind sem skoraði markið. Skiptingar í seinni hálfleik voru þær að Helga Ingibjörg og Sandra Hrönn komu inná á 77 mínútu fyrir Ýr og Berglindi. Á 83 mínútu skoraði Hrafnhildur mark.
Lokatölur 2 – 0.

Byrjunarliðið gegn Eistlandi
Byrjunarliðið gegn Eistlandi

Næsti leikur okkar var einnig í kvennaflokki og nú gegn Noregi. Leikurinn fór fram á gervigrasvellinum utandyra. Byrjunarliðið, Berglind Frost í markinu, Elva Rún, Hrafnhildur, Katrín, Laufey, Margrét Mirra, Þórey Sif, Ýr, Helga Siemsen, Helga Ingibjörg og Soffía Ummarin, fyrirliði.  Þær norsku voru betri aðilinn frá upphafi en tókst samt ekki að brjóta ísinn og skora fyrr en á 30 mínútu og þannig var staðan í hálfleik. 0 – 1. Í hálfleik varð Berglind Frost að fara af velli meidd og í hennar stað kom Hrafnhildur í markið. Þá fór Elva Rún einnig útaf og inná fyrir þær komu Berglind og Þórgunnur. Þær norsku skora mark nr. 2 eftir 55 mín. Á 60 mín. fóru þær Ýr, Helga Ingibjörg og Þórgunnur útaf, hún var orðin meidd. Inná komu Harpa, Sóley og Helga Rún. Norðmenn skora síðan á 62. 69. 71. og 73. mín. og staðan orðið 0 – 6.  Á 74. mínútu kom Sandra inná fyrir Þórey. Þær norsku bæta við mörkum á 81. og 87. mínútu.
Lokatölur 0 – 8.

Byrjunarliðið gegn Noregi

Þá var komið að karlaliðinu og fyrsti leikur þeirra var við gestgjafana Svía. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhöllinni. Byrjunarliðið Halldór Páll í markinu, Andri Þór, Sigurjón Ari, Davíð Fannar, Páll Fannar, Bjarki, Gunnar Þór, Andri Snær, Indriði, Júlí og Þorbergur Ingvi fyrirliði. Staðan í hálfleik var 0 – 0. Dómarinn sleppti augljósri vitaspyrnu á Svíana í fyrri hálfleik en þeir áttu þrjú góð færi í hálfleiknum og a.m.k. einu sinni bjargaði Halldór vel í markinu. Páll Fannar fór út af í hálfleik og inná kom Hlöðver. Fengum gott færi í byrjun seinni hálfleiks en tókst ekki að skora. Á 42. mínútu fór Andri Snær útaf og inná kom Daníel. Hann meiddist síðan fljótlega, fékk boltann í andlitið af stuttu færi og þurfti að fara af velli og inná kom Benedikt. Á 80. mínútu fór Sigurjón af velli og inná kom Christopher. Þegar um 3 – 4 mínútur voru eftir af leiknum var boltanum sparkað út úr vörninn hjá okkur og inná vallarhelming Svíanna þar sem markmaður þeirra kom hlaupandi út úr teignum, var fyrstur í boltan og spyrnti honum inní vítateig okkar. Þar uppúr þurru skora Svíar mark en á sama tíma voru a.m.k einn ef ekki tveir okkar leikmanna liggjandi í grasinu og dómarinn sá ekki ástæðu til að stoppa leikinn. Eftir mark Svíanna áttum við tvö góð marktækifæri en inn vildi boltinn ekki fara.
Lokatölur 0 – 1 fyrir Svía.

Ekki sanngjörn úrslit þar sem við áttum ekki færri færi en þeir. Dómarinn sleppti tveimur augljósum vítaspyrnum í leiknum, einni á hvort lið, Eina sem út á dómarann mátti setja var að hann skyldi ekki stoppa leikinn rétt áður en Svíarnir skora eins og áður sagði. Halldór í markinu stóð sig vel og bjargaði nokkrum sinnum.

Byrjunarliðið gegn Svíþjóð

Næsti leikur var við Danmörk í kvennaflokki. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhöllinni. Byrjunarliðið Berglind Frost í markinu, Elva Rún, Hrafnhildur, Katrín, Laufey, Margrét Mirra, Þórey Sif, Ýr, Berglind Birta, Helga Siemsen og Soffía Ummarin, fyrirliði. Í hálfleik var staðan 0 – 1 fyrir dönum en markið var skorað á 11. mínútu. Margrét Mirra og Elva Rún fór út af í háfleik og inná komu Helga Rún og Sóley. Á 63 mínútu fer Helga Siemsen útaf og inná kom Sandra Hrönn. Skömmu síðar skora Danir mark og staðan orðin 0 – 2.  Á 76. mínútu fer Ýr útaf og inná kemur Harpa Lind.  Á 86 mínútu skora Danir þriðja markið. Berglind stóð sig vel í markinu og varði nokkrum sinnum mjög vel.
Lokatölur 0 – 3

Byrjunarliðið gegn Danmörku

Þá var komið að fjórða leiknum í röð, á fjórum dögum hjá kvennaliðinu.
Ísland – Svíþjóð. Leikurinn fór fram í knattspyrnuhöllinni. Byrjunarliðið Berglind Frost í markinu, Elva Rún, Hrafnhildur, Katrín, Helga Ingibjörg, Margrét Mirra, Þórey Sif, Ýr, Berglind Birta, Helga Siemsen og Soffía Ummarin, fyrirliði.  Á 41. mínútu skora þær sænsku mark og staðan orðið 0 – 1 sem var staðan í hálfleik. Berglind Frost hafði varið vel í nokkur skipti. Í hálflleik fór Elva Rún af velli og inná kom Þórgunnur. Á 52 mínútu skora Svíar mark og staðan orðin 0- 2. Þær bæta við marki á 62. mínútu og staðan orðin 0 – 3. Í framhaldi af markinu fara Berglind og Hrafnhildur útaf og inná komu Sandra Hrönn og Helga Rún. Á 76. mínútu skora Svíar mark og staðan orðin 0 – 4.  Á 87. mínútu er dæmt víti á Helgu Ingibjörgu sem þær sænsku skora úr og staðnan orðin 0 – 5.
Lokatölur 0 – 5.

Byrjunarliðið gegn Svíþjóð

Ísland – Finnland í karlaflokki, leikið á gervigrasvellinum utandyra.
Finnar höfðu unnið Svía 2 – 0 og því var ljóst að fyrir okkar voru allir möguleikar á því að leika um sæti. Með sigri gátum við leikið til úrslita eða um 3ja sæti en mað jafntefli eða tapi um 5 sæti.
Byrjunarliðið Halldór Páll í markinu, Andri Þór, Sigurjón Ari, Davíð Fannar, Páll Fannar, Bjarki, Gunnar Þór, Hlöðver, Indriði, Júlí og Þorbergur Ingvi fyrirliði. Daníel óleikfær eftir að hafa fengið boltann í andlitið í leiknum á móti Svíum, nefið skaddað og hann var að fá blóðnasir upp úr þurru. Á 19 mínútu skora Finnar mark og staðan orðin 0 – 1 sem og var staðan í hálfleik. Engar breytingar gerðar í fyrri hálfleik og seinni hálfleikurinn byrjaði með sama liðið inná. Á 51. mínútu missteig Þorbergur Ingvi sig og gat ekki haldið áfram, hann fór af velli  og inná kom Christopher. Á sama tíma fór Páll Fannar útaf og inná kom Sigmundur Freyr. Á 64 mínútu skorar Andri Þór mark og staðan orðin 1 – 1. Í framhaldinu áttu Finnar tvö skot á markið sem Halldór varði vel. Á 80. mínútu fer Hlöðver útaf og inná kemur Fannar Örn. Á 87. mínútu fór Gunnar Þór útaf og inná kom Anton Gunnlaugur.
Lokatölur 1 – 1 og því ljóst að leikið yrði um 5ta sæti gegn Eistum.

Byrjunarliðið gegn Finnlandi

Ísland – Eistland. Leikið á gervigrasvellinum utandyra. Byrjunarliðið Halldór Páll í markinu, Andri Þór, Sigurjón Ari, Davíð Fannar, Sigmundur Freyr, Bjarki, Hlöðver, Andri Snær, Indriði sem var fyrirliði, Júlí og Christopher.  Þorbergur Ingvi og Daníel voru óleikfærir. Eftir 5 mínútna leik skora Eistar, stungubolti innfyrir vörnina sem sóknarmaður þeirra nær og rennir boltanum í netið. Eftir 35 mínútur fer Bjarki útaf og inná fyrir hann kom Páll Fannar. Á 40. mínútu skora Eistar annað mark.  Á 41. mínútu meiðist Sigmundur Freyr og verður að fara af velli en við kláruðum hálfleikinn einu færri.  Staðan í háfleik 0 – 2 fyrir Eistana. Í hálfleik kom Gunnar Þór inná fyrir Sigmund. Á 43. mínútu skorar Andri Þór gott mark með mikilli eftirfylgni. Á 63. mínútu fóru Júlí og Sigurjón Ari af velli en í þeirra stað komu inná Anton Gunnnlaugur og Fannar Örn.  Á 73. mínútu fer Andri Snær af velli og inná í hans stað kom Benedikt.
Lokatölur 1 – 2.

Byrjunarliðið gegn Eistlandi

Niðurstaðan:
Kvennaliðið 4rða sæti.
Karlaliðið 6ta sæti.
Væntingar fyrirfram um árangur hjá kvennaliðinu var að mínu mati 4rða sæti sem náðist. Á mótinu 2019 náðum við þriðja sæti en hópurinn að þessu sinni var ekki jafnsterkur og þá.
Í karlaflokki var fyrirfram að mínu mati hægt að búast við öllu. Með jafntefli á móti svíum eða sigri gegn Finnum hefðum við leikið um 3ja sæti. Þannig að það var stutt á milli árangurs hjá karlaliðinu.

Í lokahófinu voru afhent sérstök verðlaun:
Konur:
Besti lekmaðurinn: Stine Keite Noregi.
Markahæsti leikmaðurinn: Ellen Wang Noregi.
Besti markmaðurinn: Victoria Vihman Eistlandi.
Að mínu mati hefði Berglind Frost okkar markmaður alveg verið vel að því komin að vera valin besti markmaðurinn en hún varði oft mjög vel og a.m.k. einu sinni stórkostlega, en það er ljóst að Victorina er enginn aukvisi í markinu enda landsliðsmarkmaður Eistlands.

Karlar:
Besti leikmaðurinn: Eetu Sassilla Finnlandi.
Markahæsti leikmaðurinn: Magnus Öslebye Noregi
Besti markmaðurinn: Jonas Käck Svíþjóð

Það er þó ljóst frá mínum bæjardyrum séð eftir þetta mót, að nær öll liðin á mótinu voru í betra leikformi en okkar lið. Það var augljóst að nær allir leikmenn, hinna liðanna, hvort sem var í karla- eða kvennaflokki eru að stunda knattspyrnu dags daglega og því í betra leikformi. Hvað almennt líkamlegt ástand varðar tel ég að það halli líka á okkar lið. Getur verið að líkamlegt form íslenskra lögreglumanna, að jafnaði, sé ekki jafngott og kollega þeirra á hinum norðurlöndunum?

Að lokum vil ég f.h. ÍSL þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari vegferð með NPC í knattspyrnu, leikmönnum, þjálfurum og liðsstjórum fyrir þátttökuna.

Óskar Bjartmarz
formaður ÍSL og fararstjóri

Scroll to Top