| 1. | Mótið heitir: Landsmót lögreglumanna í holukeppni |
| 2. | Mótið er haldið á vegum Íþróttasambands Lögreglumanna (ÍSL). |
| 3. | Golfnefnd ÍSL er umsjónaraðili mótsins hverju sinni. |
| 4. | Ekkert þátttökugjald er í mótinu en teiggjald í hverri umferð greiðist af |
| keppendum að undanskildum undanúrslita- og úrslitaleikjum. | |
| 5. | Um þáttökurétt fer sem segir í: Reglur um rétt til þátttöku í Landsmótum ÍSL. |
| 6. | Keppnin fer fram frá miðjum júní og lýkur með 4 manna úrslitum í síðasta lagi |
| um miðjan ágúst. | |
| 7. | Tilkynning um mót er send út og tilkynningarfrestur upp gefinn. Að honum |
| loknum skal draga saman aðila til að keppa sín á milli. Heimilt er að byggja þann | |
| drátt á svæðisbundnum forsendum. | |
| 8. | Keppnisfyrirkomulag skal vera eftirfarandi. |
| Forkeppni skal viðhöfn ef á þarf að halda, þannig að eftir standi 16 eða 8 | |
| keppendur. Forkeppnin er einnig holukeppni og fer fram á milli þess fjölda sem | |
| þarf til að eftir standi 16 eða 8 keppendur. Hjáseta ræðst af forgjöf hvers og eins | |
| þann dag, sem dregið er fyrir viðkomandi umferð og sitja þeir hjá sem hafa | |
| lægstu forgjöfina. Sá sem dregin er fyrr út skal vera umsjónaraðili í viðkomandi | |
| leik og ákveður keppnisvöll. Í fyrsta drætti skal leggja línur um hvenær hverri | |
| umferð fyrir sig skal vera lokið. | |
| 9. | Holukeppnin er einstaklingskeppni, með forgjöf, í allt að 18 holur eða þar til |
| úrslit ráðast í hverjum leik. Undanúrslit skulu fara fram þannig að dregið er um | |
| hverjir keppa innbyrgðis og síðan leika þeir sem tapa um 3ja til 4a sæti og þeir | |
| sem sigra um 1sta og 2að sæti. Undanúrslit og úrslit skulu fara fram á velli sem | |
| ákveðinn er af golfnefnd ÍSL og fara fram samdægurs. ÍSL greiðir teiggjöld í | |
| undanúrslitum- og úrslitum. | |
| 10. | Veittur er eignabikar fyrir sigurvegarann. Veittir eru gull, silfur fyrir fyrsta og |
| annað sæti og brons verðlaunapeningar fyrir 3 – 4 sæti. | |
| 11. | Verðlaunapeningar eru sérstakir ÍSL verðlaunapeningar sem ÍSL greiðir fyrir. |
| 12. | Reglum þessum verður einungis breytt á þingi ÍSL. |
| Samþykkt á stjórnarfundi ÍSL þann 08. 12. 2012 | |
| Breytt á þingi ÍSL 2014 |